Asynja útivistarbuxur | utilif.is

Asynja útivistarbuxur

V011621

Asynja buxurnar eru tilvalin skel í göngu þegar allra veðra von, enda einstaklega vatnsheldar. Buxurnar eru léttar og pakkanlegar en jafnframt slitsterkar og áreiðanlegar. Buxurnar eru búnar til úr hinu vandaða Cutan® efni sem Klättermusen framleiða sjálf. Cutan® efnið andar vel, er vatnshelt, meðfærilegt og framleitt án flúor-kolefnis. Lokað er sérstaklega fyrir sauma á Asynja buxunum til að fullkomna vatnsheldni. Asynja vörulínan frá Klättermusen samanstendur af léttum, vatnsheldum ytri lögum, með Asynja sett í bakpokanum getur ekkert veður stoppað þig. 

Tilvaldar í: Göngur, klifur

Helstu eiginleikar:

  • Hálf sídd buxnanna er með tvíhliða rennilás fyrir loftun
  • Teygja aftan á mittinu sem aðlagast líkamanum 
  • Einn rassvasi með rennilás
  • For-brot yfir hné fyrir aukna hreyfigetu 
  • Efnin neðst í faldi skálmanna, við hné og í mitti styrkt fyrir aukna endingu
  • Stillanleg skálma breidd og neðri faldur með krókum fyrir reimar

Efnasamsetning:

  • 3L Cutan® - 100% Recycled Polyamide, 103 g/m²
  • Icebreaker® - 100% Post-Consumer Recycled Polyester

Cutan® er sérhæfð Klättermusen vatnsheldi- og loftunartækni þróuð til að bæta efni, bæði hvað varðar frammistöðu og sjálfbærni, með PTFE-fríum himnum sem eru flúor-kolefnislausar í framleiðslu. Cutan® efnin eru mjúk, meðfærileg og framleidd án flúor-kolefnis.

Icebreaker er létt og sterkt efni sem Klättermusen nota aðallega til styrkingar. Efnið hefur mikið slitþol og er furðu þunnt, veitir styrk án þess að skapa umfang. Þannig er efnið fullkomið til þess að loka vösum eða samskeitum á flíkum. Slétt yfirborðið leyfir hvorki snjó né ís að festast sem gerir Icebreaker tilvalið efni fyrir svæði eins og buxnafeld. 

Bluesign® merkið á efnum Klättermusen þýðir að varan uppfyllir ströngustu kröfur um öryggi neytenda með því að nota efni og tækni sem sparar auðlindir og lágmarkar umhverfisáhrif. Klättermusen hefur verið bluesign® kerfisfélagi síðan 2007.

Varan er framleidd án flúor-kolefnis.

Frammistaða:

  • Þyngd 359g
  • Lengd á klauf að innan (innansaumslengd?) 83 cm
  • Flúorkolefnis laus vara
  • MFR (Mass Flow Resistance)* MFR 10
  • Water Column (Vatnssúla?) >20000 mm
  • Moisture Vapour Permeability  (Raka- og gufu loftun?) >20 000 g/m2/24h

* Mass Flow Resistance (MFR) kerfið hjálpar þér að ákveða hvaða vind- og vatnsheldni búnaður hentar best fyrir næsta ævintýrið þitt. MFR tekur mið af því hversu auðveldlega loft fer í gegnum efni og hvernig mismunandi loftslag hefur áhrif á líkamshita þinn.

Stærð og Snið
Þessi vara er í staðlaðri stærð, mælt er með að velja þá stærð sem þú ert vanur.

  • Meðalstærð innansaumslengd: 83 cm
  • Létt efni sem andar, ekki teygjanlegt
  • Fyrirsætan á myndinni er með mittisstærð 32, 185cm hár og í stærð M af buxunum

Þvottur og umhirða:

Þvoið buxurnar í vél við 30°C eða minna, á hægum snúning. Notið þvottaefni án klórs. Setið buxurnar í þurrkara við lágan hita til að endurvirkja vatnsheldni. Setjið buxurnar ekki í hreinsun. Þvoið buxurnar reglulega.